Vefleiðangur til Kaupmannahafnar
eftir Jóhönnu Geirsdóttur
Kynning
Kaupmannahöfn (danska: København) er höfuðborg Danmerkur. Kaupmannahöfn stendur við Eyrarsund á austurströnd Sjálands og er að hluta til á eyjunni Amager sem er austan við Sjáland. Kaupmannahöfn varð höfuðborg Danmerkur árið 1536.
Kaupmannahöfn er ein af elstu og fallegustu borgum meginlandsins. Hvort sem þú vilt versla eða borða, fara á söfn, tónleika eða í leikhús þá býður þessi gamla höfuðborg Íslendinga upp á allt sem þarf. |
Fyrir þá sem vilja versla er bæði hátíska og lágtíska og allt þar á milli á Strikinu eða einhverri af litlu götunum í nágrenni þess.
Og það er engin ástæða til að borða bara síld og smurbrauð. Kaupmannhöfn er smekkfull af alls kyns veitingahúsum sem jafnast á við það besta í Evrópu, og skemmtileg kaffihús, barir og klúbbar eru á hverju strái. |