Vefleiðangur til London
Kynning – Verkefni – Bjargir – Ferli – Mat
Kynning
London er höfuðborg Englands. Hún er oft kölluð drottning stórborganna. Þangað sækja margir ferðamenn allt árið um kring.
Hvort sem þú hefur áhuga á kvikmyndum listasöfnum, verslunum, veitingahúsum eða næturlífi, fara í leikhús eða horfa á fótbolta, þá er það hér allt í hnotskurn því fáar borgir státa af eins fjölbreyttu menningarlífi, jafnmörgum leikhúsum, söfnum og merkisbyggingum, kvikmyndahúsum og tónleikasölum. Þar við bætast ótal matsölu- og veitingastaðir og vöruúrval í verslunum sem er mjög fjölbreytt. Í London er best að nota neðanjarðarlestirnar til að komast fljótt og ódýrt á milli staða.

Verkefni
Vefleiðangur til London er ætlaður fyrir nemendur í tölvuáföngum.
Með því að fara í gegnum hann eiga þeir að læra að leita á Vefnum að því sem þeir óska eftir.
Einnig læra þeir að senda skýrslu sem viðhengi í tölvupósti, því vefleiðangrinum lýkur á því að nemendur gefa skýrslu um niðurstöður sínar og senda kennara sem viðhengi í tölvupósti. Í heild á verkefnið að taka u.þ.b. eina til tvær vikur.
Kennari kynnir verkefnið fyrir nemendum.
Þeir eiga síðan að vinna sjálfstætt – í tölvuveri eða heima – og skila síðan niðurstöðum í lok seinni vikunnar í skýrsluformi til kennara sem viðhengi í tölvupósti. Allar tengingar í síður á Vefnum þurfa að vera virkar í skýrslunni.
Nemendur vinna einn til tveir saman og ímynda sér að þeir séu að fara í ferð til London. Þar ætla þeir að dvelja þar í nokkra
daga.
Þeir eiga að leita á Vefnum að ódýru hóteli á bilinu 80–140 pund fyrir tveggja manna herbergi. Það á að vera
staðsett nálægt neðanjarðarbrautarstöð.
Flogið er með Flugleiðum eða WOWair beint til London
Síðan vinna nemendur eftirfarandi verkefni:
a) Kanna hvaða söngleiki er verið að sýna í London á þeim tíma sem dvalið er þar; einnig tíma og verð og hvort hægt
sé að panta í gegnum Vefinn og greiða með greiðslukorti.
b) Þeir, sem áhuga hafa á að fara á fótboltaleik meðan á dvölinni stendur, athugi hvort, hvenær og hvar og hvaða lið verða að keppa. Ef leikurinn er ekki í London (t.d. í Liverpool eða Manchester), á að finna út hvernig hægt er að komast til staðarins með
lest.
c) Nemendur kanni möguleika á að fara í kynnisferð um borgina. Þeir athugi verð, tíma og ferðatilhögun og taka fram hvaða staðir verða skoðaðir í ferðinni.
d) Nemendur kynni sér helstu verslanir og útimarkaði í London.
e) Nemendur finni helstu söfn í London. Þeir velja eitt af þeim og og skrifa stutta lýsingu á safninu (málverk, höggmyndir, fornleifar).

Bjargir
Tengisíðurnar hér fyrir neðan hjálpa við að finna það sem leitað er eftir:
Flugfélög:
Flugleiðir
WOWair
Flugvellir í London:
Heathrow
Stansted
Gatwick
Lestarferðir frá flugvöllum
Heathrow Express
Stansted Express
Gatwick Express
Hótel í London
Kort af London
Að ferðast um í London
Fótbolti
Leikhús
Hvað er að gerast í London?
London Eye
Helstu viðburðir í London
London Original Sightseeing Tour (London Coaches)
The London Pass
Petticoat Lane
Camden Town
Portobello Road
Covent Garden

Ferli
Byrjið á að skoða í hverju verkefnið felst og hvað ykkur langar að gera meðan á dvöl ykkar stendur.
Skoðið bjargirnar sem fylgja þessum vefleiðangri.
Þið megið gjarnan leita sjálf á Vefnum eftir því sem þið hafið áhuga á.
Þá farið þið inn á leitarsíður, t.d. Google og notið leitarorð.

Mat
Nemendur vinna tveir saman í hópi eða einir sér.
Framlag hvers hóps, eða nemanda, fyrir sig á að senda í skýrsluformi sem viðhengi í tölvupósti til kennara.
Eftirfarandi atriði þurfa að koma fram í skýrslunni:
Allir nemendur
Brottför og komutími Keflavík-London.
Brottför og komutími London-Keflavík.
Hótel: Nafn, staðsetning, verð, þægindi (WC, sturta, morgunverður o.s.frv.).
Næsta neðanjarðarbrautarstöð.
Lest frá flugvelli að hóteli á komudegi.
Brottfarartími lesta, verð og hve langan tíma ferðin tekur til London.
Lest til flugvallar á brottfarardegi:
Brottfarartími lestar frá lestarstöð miðað við brottfarartíma flugvélar frá fluvelli í London til Keflavíkur.
Ath. ætlast er til að mætt sé á flugvöllinn u.þ.b. tveimur tímum fyrir brottför flugvélar.
Verkefnaskil
Nemendur skila upplýsingum um það sem beðið er um í fyrirmælunum.
Nú er um að gera að láta hugmyndaflugið ráða! – Gangi ykkur vel!